Þinn persónulegi hljóðheimur

Flanerí eru hljóðgöngur um sögu og samtíma í hlaðvarpsformi. Hljóðgöngur þekkjast víða um heim þar sem þær flétta saman útiveru, hreyfingu, sögu, borg og upplifun. Flanerí er hins vegar nýjung í íslensku menningarlandslagi sem tengir sögu- og menningargöngur við nútímatækni og þægindi. 

Hver hljóðganga, eða Flanerí, er um hálftíma löng og fer fram á ákveðnu svæði. Hlustendur hlaða göngunni niður í símann sinn eins og hverju öðru hlaðvarpi og fara svo í gönguna þegar þeim hentar. Í göngunni upplifa hlustendur liðna sögu og samtíma í persónulegum hljóðheimi sem varpar nýju ljósi á það umhverfi sem gengið er í. 

Frásagnir, viðtöl, umhverfishljóð, staðreyndir og skáldskapur sveipa umhverfið nýjum blæ og fara með hlustendur í ferðalag á kunnuglegar en jafnframt framandi slóðir.

Það hefur enginn gert hljóðgöngur á Íslandi með þessu sniði. Flanerí kostar ekkert fyrir hlustandann, það er auðvelt og handhægt í notkun, það er hægt að nálgast það og njóta þess hvenær sem hlustandanum hentar.

IMG_1678_svhv.jpg
 

Flanerí hópurinn

Aðalbjörg Árnadóttir • Sviðslistakona, er með BFA í leiklist og M.A. í Hagnýtri Menningarmiðlun

Elísabet Jónsdóttir • Grafískur hönnuður og með M.A. í Hagnýtri Menningarmiðlun

Rannveig Bjarnadóttir • Sjúkraþjálfari og með diploma í Vefmiðlun

Snorri Rafn Hallsson • Dagskrágerðarmaður með M.A. í Heimspeki

Flanerí hljóðvapp vill heyra frá þér

Hafðu samband og við getum skapað þinn persónulega hljóðheim fyrir þig, fyrirtækið þitt eða bæinn þinn.