Flanerí KÓP #5: Hverfið mitt Kórar

Gengið er frá inngangi Hörðuvallaskóla á vit ævintýranna í Kórahverfi. Við förum í hringi og útsýnisslaufur, leikum okkur og heyrum af leynistöðum á leiðinni. Gangan endar aftur við inngang skólans.

Lengd göngu 25-30 mín Gangan er við allra hæfi.

Í þessari göngu leiða börnin í 5.bekk Hörðuvallaskóla okkur um sitt nærumhverfi. Leiðin er barnanna og við fáum tækifæri til að heyra sögur þeirra af hverfinu sínu. Við heimsækjum uppáhaldsstaðina þeirra, heyrum af merkilegum steinum og skemmtilegum leikjum.

Hlustendur upplifa persónulegan hljóðheim sem varpar nýju ljósi á það umhvefi sem gengið er í. Frásagnir, leikgleði og söngur barnanna fylla gráa göngustíga lífi og fara með okkur í ferðalag á kunnulegar en jafnframt framandi slóðir.


Flanerí KÓP - Hverfið mitt Kórar er unnið í samstarfi við Hörðuvallaskóla, Bókasafn Kópavogs og styrkt af Bókasafnssjóði

Kíktu á bak við tjöldin og sjáðu ferlið við gerð göngunnar

Hægt er að hlusta í spilaranum hér að ofan eða á:

Apple PodcastsAnchorSpotifyPocketCastsGoogle Podcasts

Á vefnum eru leiðbeiningar um hvað hljóðvapp er og hvernig þú notar það

Next
Next

Flanerí RVK #1: Ættarmót í Grasagarðinum